Sérstilling hlutverka fyrir ákveðna notendahópa

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig fyrirtæki geta tekið fyrirfram skilgrein hlutverk og sérstillt þau að sínum þörfum. Fyrirtæki spyrja oft hvort þau geta búið til hlutverk fyrir ákveðna notandahópa innan fyrirtækins sem er nú hægt með því að fylgja eftirfarandi leiðbeingum.

 

Við mælum með að undirbúa og prófa hlutverkið í sandbox umhverfi fyrst. Hægt er svo að lesa það yfir í production umhverfi þegar allar sérstillingarnar eru tilbúnar.

Farið er inn í Forstillingar (Hlutverk).

 

image-20240412-170839.png

Næst er valið það hlutverk sem að hentar best, og það afritað í nýtt. Hér er best að velja það hlutverk sem er með sem flestum aðgerðum og fela þær, frekar en að bæta við.

image-20240412-171145.png

Við það verður til nýtt hlutverk og passa þarf að hafa hakað í “Virkt” og “Sýna í hlutverkaleit”.

Þegar hlutverkið er tilbúið þarf að passa að skipta yfir í nýja hlutverkið áður en það er byrjað að sérstilla.

Þegar búið er að opna hlutverkið er aftur farið í Forstillingar (Hlutverk).

Næst er nýja hlutverkið valið og smellt á “Sérstilla síður”.

Þá opnast sérstillingarhamur í nýjum glugga.

Nú er hægt að breyta öllu líkt og í sérstillingu notanda. Allar breytingar munu varðaveitast á þessu nýja hlutverki.

Hér er hægt að fela og bæta við aðgerðum á upphafsmynd. Einnig er hægt að fara í sölu- og innkaupaskjöl, t.d. afhendingarsamkomulag, og sérbreyta öllum aðgerðum, reitum og línum á síðunni. Ef filterar eru búnir til, vistast þeir einnig á þeim síðum sem þeir eru búnir til. Þetta er hægt að gera á öllum helstu síðum og töflum í kerfinu.

 

 

Hér í þessu dæmi er aðgerðin “Vöruhús” efst á aðgerðaborða falin.

Fyrir:

 

Eftir:

 

Þegar sérstillingu er lokið er smellt á lokið.

 

 

Nú þarf að endurræsa kerfið (loka og opna aftur).

Við það uppfærist nýja hlutverkið og sérstillingarnar haldast inni. (Ef það uppfærðist ekki prófið að breyta í annað hlutverk og svo aftur til baka í nýja hlutverkið).

Hér í dæminu sést núna að vöruhúsa aðgerðin er ekki lengur sýnileg í þessu nýja hlutverki:

 

Þegar það er verið að stilla þessu upp er alltaf hægt að opna sérstillinguna aftur og lagfæra.

 

Athugið að þetta stjórnar ekki heimildum notanda. Notendur geta enn sérstillt þetta nýja hlutverk að sínum þörfum, bætt við, eytt og fært til.

Breytingar sem notandinn gerir sjálfur á einöngu við um hann.

 

Til þess að flytja hlutverk milli umhverfa, til dæmis úr sandboxi inn í production er hægt að nota aðgerðirnar flytja út og flytja inn. Fylgjð leiðbeiningum kerfisins þegar þessar aðgerðir eru notaðar.