Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 4 Next »

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig fyrirtæki geta tekið fyrirfram skilgrein hlutverk og sérstillt þau að sínum þörfum. Fyrirtæki spyrja oft hvort þau geta búið til hlutverk fyrir ákveðna notandahópa innan fyrirtækins sem er nú hægt með því að fylgja eftirfarandi leiðbeingum.

ATHUGIÐ Við mælum með að undirbúa og prófa hlutverkið í sandbox umhverfi fyrst. Hægt er svo að lesa það yfir í production umhverfi þegar allar sérstillingarnar eru tilbúnar.

Farið er inn í Forstillingar (Hlutverk)

image-20240412-170839.png

Næst er valið það hlutverk sem að hentar best, og það afritað í nýtt. Hér er best að velja það hlutverk sem er með sem flestum aðgerðum og frekar fela þær en að bæta við.

image-20240412-171145.png

image-20240412-171309.png

Við það verður til nýtt hlutverk og passa þarf að hafa hakað í virkt og sýna í hlutverkaleit

image-20240412-171408.png

Þegar hlutverkið er tilbúið þarf að passa að skipta yfir í nýja hlutverkið áður en það er byrjað að sérstilla.

image-20240412-171639.png

Þegar búið er að opna hlutverkið er aftur farið í Forstillingar (Hlutverk)

image-20240412-170839.png

Næst er nýja hlutverkið valið og smellt á sérstilla síður

image-20240412-171919.png

Þá opnast sérstillingarhamur í nýjum glugga

image-20240412-172301.png

Nú er hægt að breyta öllu líkt og í sérstillingu notanda. Allar breytingar munu varðaveitast á þessu nýja hlutverki.

Hér er hægt að fela og bæta við aðgerðum á upphafsmynd. Einnig er hægt að fara í sölu- og innkaupaskjöl, t.d. afhendingarsamkomulag, og sérbreyta öllum aðgerðum, reitum og línum á síðunni. Ef filterar eru búnir til, vistast þeir einnig á þeim síðum sem þeir eru búnir til. Þetta er hægt að gera á öllum helstu síðum og töflum í kerfinu.

Hér í þessu dæmi er aðgerðin vöruhús efst á aðgerðaborða falin.

Fyrir:

image-20240412-173104.png

Eftir:

image-20240412-173118.png

Þegar sérstillingu er lokið er smellt á lokið.

image-20240412-173507.png

image-20240412-173520.png

Nú þarf að endurræsa kerfið (loka og opna aftur).

Við það uppfærist nýja hlutverkið og sérstillingarnar haldast inni. (Ef það uppfærðist ekki prófið að breyta í annað hlutverk og svo aftur til baka í nýja hlutverkið)

Hér í dæminu sést núna að vöruhúsa aðgerðin er ekki lengur sýnileg í þessu nýja hlutverki:

image-20240412-173639.png

Þegar það er verið að stilla þessu upp er alltaf hægt að opna sérstillinguna aftur og lagfæra.

Athugið að þetta stjórnar ekki heimildum notanda. Notendur geta enn sérstillt þetta nýja hlutverk að sínum þörfum, bætt við, eytt og fært til.

Breytingar sem notandinn gerir sjálfur á einöngu við um hann.

Til þess að flytja hlutverk milli umhverfa, til dæmis úr sandboxi inn í production er hægt að nota aðgerðirnar flytja út og flytja inn. Fylgjð leiðbeiningum kerfisins þegar þessar aðgerðir eru notaðar.

image-20240412-174127.png
  • No labels